saemundur
13/10/2022

Spariföt og Kremkex

Fátt finnst auglýsingafólki skemmtilegra en að brjóta hefðir. Skilaboð frá mörgum fyrirtækjum samtímis þykja ekki tiltökumál og eru þá yfirleitt mjög almenns eðlis, en framleiðsla á raunverulegum auglýsingum sem kynna vörur beggja eru sjaldséðari. Þess vegna erum við sérlega roggin með samstarfið við Kexverksmiðjuna Frón og Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar. Þrír Sæmundar fóru í betri fötin og Baldur Kristjáns tók ljósmyndir.

Galdurinn fólst í að setja módel að nafni Sæmundur í spariföt. Glöggir lesendur sjá ef til vill strax tenginguna við hið klassíska kremkex enda er hún augljós.

Kexverksmiðjan Frón og Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar fá bestu þakkir fyrir að vilja leika við okkur.