sumar og fri
03/07/2025

Sumar og frí

Á okkar vinnustað sýnist okkur eins og það sé heldur að aukast að fyrirtæki haldi sig til hlés yfir mesta sumarleyfatímann. Það hægist á öllu einhvern veginn. (Ja, reyndar ekki núna, en oftast). Ef næst ekki að klára verkefni í maí eða júní, ja, þá er það bara ágúst, samt ekki fyrr en í fyrsta lagi um miðjan. Það ríkir viss almennur skilningur á því að hlutir gerist hægar á þessum aðalsumarleyfatíma, ekki síst í skrifstofustarfsemi af ýmsu tagi. Sama gildir í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Áður fyrr lokuðu t.d. verksmiðjur á Norðurlöndunum einfaldlega og allir fóru í frí, svokallað „virksomhedsferie“. Starfsfólkið hlóð batteríin í fríi en tíminn á meðan var lokað var nýttur í viðhaldsvinnu. Sama þróun á sér stað hérlendis. Mörg fyrirtæki loka í eina til þrjár vikur, þegar minnst er um að vera.

Árið 2016 tók íslenska karlalandsliðið þátt í Evrópukeppni í knattspyrnu. Eftir því sem gengi liðsins í keppninni batnaði varð æ erfiðara að koma áfram verkefnum hér á stofunni. Öll sem áttu að taka ákvarðanir hurfu einhvern veginn – af landi brott. Og nú er nýhafin Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Margir hafa þegar tryggt sér sæti á leikjum í tíma og nú verður spennandi að sjá hvort hálf þjóðin þurfi að kaupa miða til Sviss í ofboði. Við vonum hið besta. Áfram Ísland!

Fólk í norðurhluta álfunnar hefur í gegnum tíðina streymt til suðlægari slóða til að tryggja sér sólarstundir og yl. Nú berast fréttir af fólki um alla álfu sem er komið að niðurlotum í svæsnum hitabylgjum. Sólarfríið verður að hálfgerðri martröð því alltof heitt er engin dásemd. Hin nýja tegund sumarleyfa er „coolcation“. Í grein sem birtist í apríl á Lonely Planet má sjá 10 bestu staðina til að skella sér í kælifrí eins og það er oft kallað. Á þeim lista er Ísland í þriðja sæti á eftir Upper Peninsula, Michigan, USA og Mexíkó City. Í fjórða sæti eru síðan Noregur, Svíþjóð og Finnland. Akureyri er líka að opnast enn meira fyrir slík frí eins og rakið er hér. Er hlýnun jarðar enn eitt hamfaratækifærið fyrir oss Frónbúa?

Hér á Pipar\TBWA stefnum við á að loka í viku 31, þ.e. síðustu viku fyrir verslunarmannahelgi og nánast allir verða í fríi á þessum tíma. Gleðilegt sumarfrí!