black
07/12/2021

Svart, svartara, svartast

Svartur föstudagur (e. Black Friday) er sá tími ársins þegar milljónir manna um allan heim klára jólagjafainnkaupin eða gera góð kaup fyrir heimilið. Svarti föstudagurinn kemur upphaflega frá Fíladelfíu í Bandaríkjunum á sjötta áratugnum. Hugtakið þótti neikvætt í þá daga og reyndu stóru verslanirnar að breyta nafninu í Big Friday, en án árangurs.

Ein af skýringunum á bakvið nafngiftina er sögð vera hvað verslanir selji mikið, enda jólagjafasölutímabilið hafið og það skilar hagnaði. Tölur yfir hagnað hafa svartan lit, á meðan tap er rautt.

Með tilkomu stafrænna auglýsingatóla eins og Google, Facebook o.fl. getum við rýnt í gögn til að skoða kauphegðun á netinu. Þar kemur ýmislegt í ljós. T.d. gaf Mastercard (Mastercard SpendingPulse) út að úttektir á Mastercard í netverslunum hefðu aukist um 12% á Svörtum föstudegi 2021, samanborið við sama dag í fyrra. Við sjáum líka skv. Finder.com að fólk væntir þess að fá mikinn afslátt á Svörtum föstudegi: lágmarkið virðist vera 25% en langflestir vænta þess að fá 50% og jafnvel allt að 90% afslátt.

Við rýndum í gögn viðskiptavina okkar, tókum meðaltalssölu á viku og bárum saman við Black Friday-vikuna. Í ljós kom að margir seldu vel þessa daga, t.d. jókst sala hjá einum viðskiptavini um 1126% samanborið við meðaltalssölu ársins 2021. Hjá öðrum viðskiptavini hjuggum við sérstaklega eftir því að eitt vörumerki hans, sem selur aðallega einn ágætlega dýran hlut, seldi 1899% meira en í meðalviku á árinu 2021.

Gott og blessað, en hvað með neytandann? Í heila viku var varla hægt að opna einn einasta miðil án þess að lenda í stórhríð tilboðsauglýsinga í tilefni Svarta föstudagsins, sem allar hljómuðu meira og minna eins. Er það gott fyrir vörumerki til lengri tíma? Varla. Þurfa fyrirtæki að endurhugsa hvernig þau koma skilaboðum á framfæri í tengslum við svona stóra tilboðsdaga? Kannski.