takk
12/02/2026

Takk

Í janúar fór nýtt vildarsamfélag í loftið sem nefnist Takk. Með appi og korti í Wallet safnar þú Takk krónum þegar þú kaupir Takk merktar vörur í Bónus, Hagkaup og hjá Eldum rétt. Takk krónurnar nýtast svo sem greiðsla upp í næstu ferð.
Við hér á Pipar bjuggum alla ásýnd og ímynd Takk til frá grunni. Útlit, textar, grafísk hönnun, hreyfihönnun, upplifun og öll framleiðsla miðar að því að búa til líflegt og aðgengilegt vörumerki sem talar til allra.

Pétur Jóhann Sigfússon fer á kostum í aðalhlutverkinu sem hinn ofurhressi Takkari. Það var RADAR ehf. sem framleiddi kvikmyndaða hlutann, Einar Egilsson leikstýrði og Atli Þór Alfreðsson tók ljósmyndir.