feed
12/02/2026

Tengslanet efnisskapara

Það eru býsna margir sem búa til samfélagsmiðlaefni til að birta á sínum eigin miðlum, iðulega tengt sérstöku áhugamáli, starfssviði eða hreinlega af einskærri tjáningargleði. Feed (Samskipta- og almannatengslateymi Pipars\TBWA) hefur sett upp vettvang fyrir fólk sem vill nýta sköpunarkraft sinn og fá greitt fyrir hann með því að auglýsa vörur og þjónustu, ýmist í mynd í eigin persónu eða ekki. Markmið tengslanetsins er að skapa öflugan vettvang fyrir efnisskapara til þess að koma saman og vinna faglega að gerð efnis fyrir samfélagsmiðla, enda vilja neytendur í auknum mæli sjá aðra neytendur segja frá vöru, upplifun og þjónustu – og þar kemur notendamiðuð markaðssetning sterk inn.

Hjá Feed er hægt að skrá sig á lista efnisskapara og eiga þar með möguleika á að fá hentugt verkefni til að auglýsa á samfélagsmiðlum með frumlegum, skemmtilegum og faglegum hætti – en á forsendum skaparans. Hér er hægt að skrá sig og verða hluti af öflugu tengslaneti skapara.