tolum um
01/12/2022

Tölum um Lexus

Lexus á Íslandi fann fyrir dvínandi vitund neytenda um þetta áður vel þekkta og sterka japanska gæðamerki. Þau leituðu því til okkar með stefnumótun og ímyndaruppbyggingu snemma árs. Herferðin sem við tókum upp í vor hampar öllu því besta og eftirsóknarverðasta sem Lexus stendur fyrir, með sérstakri áherslu á hið japanska „omo-te-nasi“, hugtak sem liggur djúpt í allri nálgun og hugmyndafræði á bak við Lexus og snýr m.a. að fágun, gestrisni, nákvæmni og næmi fyrir smáatriðum.

Við fengum stórleikarann Jóhannes Hauk Jóhannesson í lið með okkur, enda ástríðufullur Lexus-eigandi og aðdáandi, auk þess sem hann hefur verið rödd Lexus nokkur undanfarin ár. Tökustaðirnir voru tónlistarhúsið Harpa og hið splunkunýja Edition-hótel, en hvort tveggja rímar vel við fágun og lúxus  og fór stjörnunum afar vel, bæði Lexus og Jóhannesi. Til að setja punktinn yfir i-ið fengum við Ara Magg með sitt einstaka auga til að leikstýra og ljósmynda. Úlfur Eldjárn gerði tónlistina, en einnig bregður fyrir verki eftir Chopin í einni af auglýsingunum.