Dótturfyrirtæki okkar í Helsinki, Ceedr Finland, gerði það ekki endasleppt á „Lúðrahátíð“ Finna á dögunum, en hátíðin sú heitir Vuoden Huiput.
Ceedr Finland vann tvenn gullverðlaun og skákaði þar þekktum hönnunar- og auglýsingastofum. Verðlaunin voru veitt fyrir herferðina „Be a Canth“ sem unnin var fyrir stéttarfélagið Ammattiliitto Pro og vakti töluverða athygli fyrir djarfa nálgun og skýr skilaboð um jafnrétti. Herferðin er innblásin af Minnu Canth (1844–1897), þekktri finnskri skáldkonu og baráttukonu fyrir jafnrétti og félagslegu réttlæti, sem beitti pennanum sem sínu beittasta vopni. Ceedr Finland stýrði herferðinni, hugmyndavinnu, hönnun og að sjálfsögðu stafræna hlutanum ásamt utanhússauglýsingum og prentmiðlum.
Þá má geta þess að ¡Hola! herferð okkar fyrir Colas hlaut nýverið fimm tilnefningar til PHNX Awards verðlauna. Það kemur svo í ljós 14. maí næstkomandi hvort herferðin uppskeri verðlaun.


