r digital
12/02/2026

Vefur fyrir Sigur Rós

Eitt dótturfyrirtækja okkar hér í húsi er Reykjavík Digital. Það fyrirtæki hefur með höndum vefsíðugerð og á síðasta ári var meðal verkefna að smíða vef fyrir hljómsveitina Sigur Rós. Tilgangurinn með vefnum er að sjálfsögðu að vera upplýsingaveita og yfirlit yfir helstu verk sveitarinnar. Þar geta aðdáendur Sigur Rósar skoðað hvenær og hvort tónleikar séu framundan.

Vefurinn er einnig söluvefur þar sem hægt er að kaupa Sigur Rósar-merktar vörur fyrir þá sem vilja auðkenna sig með stjörnunum sínum. Í vefsmíðinni eins og ávallt var meginmarkmiðið að sjálfsögðu að skapa aðgengilegt vefsvæði sem leitarvélar finna auðveldlega.