radstefna valli
07/05/2026

Velsæld sem vörumerki

Alþjóðlegt velsældarþing (Wellbeing Economy Forum 2026) var haldið í Hörpu í apríl síðastliðnum. Það er heilbrigðisráðuneytið sem hélt þingið, nú í fjórða sinn. Yfirskrift þingsins að þessu sinni var The Power of Wellbeing – Redefining SuccessÞar kemur saman alþjóðlegur hópur fólks: stjórnmálamenn, stefnumótendur, fræðafólk, sérfræðingar og áhugafólk um að auka velsæld í samfélaginu með því að horfa til samfélagslegra og umhverfislegra mælikvarða auk hinna efnahagslegu.
Valgeir Magnússon, stjórnarformaður okkar, tók þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni: Branding the Nordic Wellbeing Model. Þar var velt upp þeirri spurningu hvort hægt væri að nýta velsældarmódel Norðurlandanna sem grunn að sameiginlegri mörkun (branding) svæðisins.

Í sinni umfjöllun lagði Valgeir áherslu á að sameiginlegt vörumerki fyrir Norðurlönd væri ekki bara lógó eða slagorð, heldur sú tilfinning sem fólk fær þegar það heyrir minnst á Norðurlöndin. Hann benti á að þrátt fyrir menningarmun, sem er meiri en fólk áttar sig á, þá deili Norðurlöndin sameiginlegum gildum sem megi nýta sem einn rauðan þráð í markaðssetningu.

Sameiginleg gildi: Áherslan á að skilja engan eftir og tryggja að allir hafi tækifæri til að blómstra.
Nýr mælikvarði á árangur: Að mæla árangur samfélaga út frá velsæld fremur en einungis út frá hörðum gildum eins og framleiðslu, þjóðartekjum eða t.d. hernaðarmætti. Allir mælikvarðar eru afleiðingar af velsæld.
Dýrmætur rammi: Með því að skapa vörumerki utan um þessi gildi má búa til dýrmætan ramma sem hjálpar okkur að halda fókus á því sem raunverulega skiptir máli. Þá verður sameiginlegt vörumerki Norðurlandanna að verðmætum sem við fórnum ekki svo auðveldlega.

Að mati Valgeirs er tækifæri fólgið í því að nota sameiginlega sýn á velsæld til að styrkja ímynd Norðurlandanna út á við og festa þau í sessi sem leiðandi afl í þróun nýrra samfélagsmælikvarða. Einnig gæti það virkað inn á við og hraðað og fest betur nýjan hugsunarhátt sem væri grunnurinn að öllum öðrum mælikvörðum.
Þetta leiðir hugann ósjálfrátt að spurningunni: Ætli væri hægt að skrá slíkt vörumerki?