Stofan okkar í Noregi, SDG\TBWA hlaut nýlega ein virtustu hönnunarverðlaun í heimi, Red Dot verðlaunin. Þetta eru alþjóðaverðlaun sem eru veitt fyrir hönnun og herferð vörumerkisins Canadian Seafood Treasures, í flokknum Brands & Communication Design 2025. Verkefnið er samstarfsverkefni SDG\TBWA í Noregi, Pipars\TBWA hér heima og TBWA í Danmörku.
Uppruni vöru skiptir máli og getur verið mikilvægur gæðastimpill í sjálfu sér. Það þekkjum við Íslendingar vel, t.d. í sambandi við fiskafurðirnar okkar og viljum að uppruni fisksins sé fullkomlega á hreinu því hann er mikilvægur hluti af ímynd, já og gæðum hans. Það var einmitt það sem kanadísku bolfiskútgerðirnar vildu koma á framfæri, rétt eins og við tengjum norska laxinn við gæði, sem dæmi.
Verðlaun sem þessi eru sömuleiðis dýrmætur gæðastimpill á okkar vinnu, þ.e. hönnunina sjálfa sem og markaðsstarfið og sérlega ánægjulegt að fá slíka viðurkenningu. Þetta er í fyrsta sinn sem við erum þess heiðurs aðnjótandi að fá Red Dot verðlaun.
Mörg í auglýsingageiranum bíða iðulega spennt eftir jólaauglýsingu breska verslunarhússins John Lewis. Hún er gerð af Saatchi & Saatchi í ár, þriðja árið í röð. Hér er spilað á nostalgíu enda eru jólin meira og minna nostalgíuspil. Sjón er sögu ríkari og lesendur geta sjálfir dæmt um hvað þeim finnst. Auglýsingin er án orða nema þegar lokaskilaboðin birtast, sem eru reyndar allt eins heilsársboðskapur frekar en jóla: „If you can’t find the words find the gift.“ Vel við hæfi í komandi gjafatíð.
Kauptíð reyndar. Úr því við erum byrjuð að skoða auglýsingar í útlöndum þá má alveg kíkja á þessa súkkulaðiauglýsingu í leiðinni. Vandamálið sem þurfti að leysa þar eins og á fleiri stöðum snerist um umhverfið, að minnka umbúðirnar, og ekki síst draga úr plastnotkun. Framleiðendurnir vita sem er að neytendur pirrast þegar umbúðir minnka. Auglýsingin er í kunnuglegum skandinavískum dyster-stíl = Nordic noir.


