Pipar losumhnut

FKA

Losum um hnútinn

Í ár vill Félag kvenna í atvinnulífinu benda á ójöfn kynjahlutföll í stjórnunarstöðum og framkvæmdastjórnum landsins með því að biðja fólk um að losa um bindishnútana á vinnustöðum, og í raun í samfélaginu öllu. Átakið verður þann 14. október, sama dag og viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar fer fram. Aðgerðin er táknræn, enda von okkar sú að hægt verði að losa um þennan hnút sem þrengt hefur að íslensku atvinnulífi frá upphafi.
 
Pipar\TBWA sá um framleiðslu kynningarefnisins í samvinnu við Pétur Þór Ragnarsson ljósmyndara. Við þökkum fyrirsætunum Magnúsi, Hildi, Vilhelm, Silju, Sævari, Þorbjörgu og Boga fyrir þátttökuna en þau gáfu öll vinnu sína.
 
Dómsmálaráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, Pipar\TBWA, RÚV, Sjóvá, Orkuveitan og Nasdaq Iceland eru bakhjarlar og samstarfsaðilar Jafnvægisvogarinnar sem er hreyfiaflsverkefni FKA. PiparTBWA hefur komið að Jafnvægisvoginni frá upphafi en fyrstu jafnvægismerkin voru veitt árið 2018.

Pipar losumhnut
Pipar losumhnut
Pipar losumhnut
Pipar losumhnut