Domino’s

Nýtt útlit, beint úr ofninum

Frá áramótum höfum við unnið að því að innleiða nýtt útlit í öllu markaðsefni Domino’s, í samræmi við hönnunarstaðal sem alþjóðlegu höfuðstöðvarnar í Bandaríkjunum létu hanna fyrir keðjuna. Nýja útlitið einkennist af þéttara fyrirsagnaletri, björtum og líflegum litum sem sóma sér einstaklega vel á skjámiðlum, auk þess sem sérstök áhersla er lögð á girnilegan mat á góðu verði í öllu myndefni. Merkið sjálft hefur fengið hóflega en einkar snyrtilega andlitslyftingu, ásamt því að hannað var svokallað „cravemark“ með þremur mmm, til notkunar við sérstök tilefni.
 
Vinnuheiti þess hér innanhúss er kreifmerki, en við erum alltaf opin fyrir tillögum að góðum þýðingum. Nýja efnið hefur jafnt og þétt verið að tínast inn frá áramótum og nú er svo komið að flest markaðsefni, ef ekki allt, hefur fengið nýtt og ferskt útlit.
Skyli 0 1080X1350
Skyli 2 1080X1350
Skyli 3 1080X1350
Skyli 1 1080X1350
Skyli 4 1080X1350
Cravemark