ora bjordos 1920x1080 verdlaun

ORA

Jólabjór

Hugmyndin að því að búa til bjór innblásinn af rauðkáli og grænum kviknaði hér á stofunni í tengslum við aðra vinnu fyrir ORA.

Við hjá Pipar\TBWA sáum um alla hönnun, hugmyndavinnu og kynningu á ORA Jólabjórnum. Lögð var áhersla á að sígildar umbúðir ORA grænna fengju að njóta sín í nýju og spennandi hlutverki – og þess gætt að ljóstra ekki of snemma upp um hvað raunverulega leynist í dósinni.

Jólaglaðningurinn frá ORA og RVK Brewing var frumsýndur á Bruggstofunni á J-daginn og hefur hlotið feikilega góðar viðtökur, enda fátt jólalegra en ORA grænar og rauðkál.

Dagblaðaauglýsingin fékk gullverðlaun Hönnunarverðlauna FÍT árið 2022. Auglýsingin var líka tilnefnd til Lúðursins í flokki prentauglýsinga og einnig fékk herferðin tilnefningu í flokkum umhverfisauglýsinga og almannatengsla.

Herferðin hlaut bronsverðlaun í flokknum Branded Content á Creativepool verðlaunahátíðinni 2022.

Ora Jolabjor.GIF gif
ora dagblad 3