Krísustjórnun

Öll fyrirtæki lenda einhvern tímann í vanda. Þá skiptir mestu að orðspor þeirra sé sterkt og ekki síður að rétt sé brugðist við.

Hjá FEED starfa öflugir sérfræðingar í orðsporsstýringu sem vita að krísustjórnun snýst um miklu meira en að senda út fréttatilkynningu eða mæta í sjónvarpsviðtal. Hún snýst um ábyrg og snör viðbrögð, og að vera tilbúinn að bregðast hratt við þegar á reynir.

Hvað á að gera og hvað á ekki að gera? Hvenær er rétt að bregðast við og hvenær ekki? Og hvar og hvernig er best að gera það? 

Við hjá FEED bjóðum upp á krísustjórnun með tryggri viðveru og áreiðanlegri ráðgjöf á erfiðum tímum. Það getur tekið langan tíma að koma sér upp úr krísu, en með réttum viðbrögðum, markvissum samskiptum við fjölmiðla og hagaðila og skýrum lykilskilaboðum má stytta tímann sem það tekur að komast aftur á rétta braut.