Stígamót

Sjúk ást 2022

Sjúkást er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að ungmenni þekki lykilhugtök á borð við mörk og samþykki og geti greint muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum. Pipar hefur fylgt verkefninu frá upphafi og er þetta 5. árið í röð sem við komum að hugmyndavinnu og uppsetningu.

Í ár er áherslan sett á nýja samskiptaleið fyrir ungmenni á aldrinum 13–19 ára, netspjall fyrir áleitnar spurningar sem brenna á okkur öllum. Fagfólk svarar nafnlausum fyrirspurnum, gefur góð ráð og fagálit. Kynningarefni fyrir verkið var unnið hér innanhúss en sjónvarpsauglýsingin var unnin í samstarfi við Norður og leikstýrt af Álfheiði Mörtu Kjartansdóttur.

Á sjukast.is má finna allt um verkefnið, sem og eldri herferðir sem allar voru unnar í samvinnu Stígamóta og Pipars.

Verkefnið var valið til úrslita í Care Awards samkeppninni 2022. Keppnin er haldin á vegum alþjóðlegu samtakanna ACT, en henni var komið á fót í samstarfi við Evrópuþingið árið 2008.

Herferðin hlaut bronsverðlaun í flokknum  Social Good á Creativepool verðlaunahátíðinni 2022.

Sjukast2022 vefur iPhone
Care Awards logo
CP bronze 2022 brons

Sjukast2022 vefur 02
Sjukast2022 vefur 03
Sjukast2022 vefur 04